smá fréttaskot af mér í minneapolis,
*ekki komin með vinnu, búin að leita? nei.
*orðin brún og sæl og fer í ræktina á hverjum degi (hvað er það!)
*við mamma löbbum með hundinn á hverjum morgni í 30 stiga hita og sól og í gær held ég að við höfum endanlega drepið hann því hann svaf stanslaust í fimm tíma eftirá
*fór á fótboltaleik þar sem kiwi var í aðalhlutverki, töpuðu samt 1-0
*er að undirbúaa mig fyrir hitabylgju sem er að byrja að ganga yfir, 35-40 stig og mikill raki, svimi svimi svitabað. ætla samt í sólbað á eftir.
*bíð spennt eftir skattinum hérna úti eins og heima
*og svona að lokum þá sá ég strák úti á lífinu í gær í smekkbuxum... fyrst þá áttar maður sig á því að maður sé staddur í ameríkunni.
æi, held að hitinn sé að fara illa með blogghæfileika mína og því best að hætta áður en skaðinn skeður alveg.
howdí.
nhhooo tókstu ekki bara þínar smekkbuxur upp og fórst að mingla?? haha þú áttir meira að segja tvær!! haha
SvaraEyðaGaman að heyra i þér áðan
músí mús!!!
HÆ SÆTA. var að koma heim frá Krít.. Þar er búið að vera mjög heitt..
SvaraEyða35 stig og rúmlega það þegar heitast var á daginn. En vá.. þetta var geðveikt.. skrifa kannski smá ferðasögu fljótlega ;) miss ya girl
magga: hahaha ég hefði átt að hendast í röndóttu þarna manstu:)
SvaraEyðabjögga: já velkomin heim! þú veeeeeeerður að koma með ferðasögu:)
sakna ykkar líka stúlkukindur.