miðvikudagur, júlí 08, 2009

djöf...helv...ands...

Eftir mikla átveislu í anda Helga Hafsteins skundaði ég í Reykjavíkina til þess að nota tækifærið og mála yfir vegggjakrot óprúttinna aðila í 101. Veggurinn á Þórsgötunni þykir einhverra hluta vegna hinn ákjósanlegasti kostur fyrir veggjakrotara sem ég kalla pláguna. Ég er búin að vera að svara fyrir mig í allt sumar með því að spreyja hvítu yfir spreyið þeirra þannig að upphófst einhvers konar stríð á milli mín og plágunnar, þeir spreyjuðu og ég var mætt samdægurs með hvíta brúsann.

Í gær sá ég svo mér leik á borði og ákvað að mála yfir hvíta spreyið með litnum sem er á veggnum svona til þess að kóróna sigur minn. Ég var að til klulkkan hálftólf og fór í háttinn með bros á vör. Þegar ég svo vaknaði í morgun blasti við mér ófögur sjón, hlevítis plágurnar höfðu verið að verki og í þetta skiptið stærra en áður

BERJUMST GEGN KYNREMBU!!!

Oj barasta, ég var að verða of sein í vinnuna og gat ekki spreyjað yfir þetta en mun að sjálfsögðu gera það um LEIÐ og ég kem heim og mála svo yfir þetta um LEIÐ og spreyið er þornað.

Þetta er óþolandi, er að spá í að vaka í alla nótt og fylgjast með hverjir eru þarna að verki...

hasta la vista
Lafa spæjó

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Er mín bara komin í ham ;) Kv Vala

magga sagði...

Það er rétt!
Þetta lið er ÓGEÐSLEGT!
Ég segi það aftur að við skulum bara splæsa í myndavél, sjá framan í þessa RÆFLA og spreyja þeirra hús í bak og fyrir!!!
Veit ekki hveru oft mig hefur dreymt að ég sé að lemja þessa gaura!!!

(-er það kannski kynremba að ætla að þetta séu strákar??)

Nafnlaus sagði...

hehe ég get bara ekki annað en hlegið að þessari færslu :/ sammála síðasta ræðumanni þið verðið eiginlega að fá ykkur myndavél og bösta þessa krotara...
kv teddy(kann ekki að láta nafnið fremst) :)

Nafnlaus sagði...

hehe ég get bara ekki annað en hlegið að þessari færslu :/ sammála síðasta ræðumanni þið verðið eiginlega að fá ykkur myndavél og bösta þessa krotara...
kv teddy(kann ekki að láta nafnið fremst) :)

Elín Heiður sagði...

Þú ert náttla fæddur spæjari/lögga/návonduköllunumkona!
Og ofaná það ertu hetja fyrir að halda bloggheiminum lifandi:) Bið að heilsa Möggu og hinum grindvíkingunum og heimta sumar 2001 reunion, það væri of gaman!

Lafan sagði...

takk takk stelpur mínar fyrir stuðninginn og elín jahá! getum við farið að hafa hitting, UMFG 2001 :) ??

Setjum saman lista yfir liðsfélaga og látum verða af þessu :)

...p.s. hefur ekkert verið krotað um helgina, VICTORY!