sunnudagur, maí 18, 2008

nýjasti meðlimur löfunnar.is

nýtt ár hófst með nýjungum hjá löfunni. hún fjárfesti í sínum fyrsta bíl, sem ber heitið ZAD12 þar til annað nafn ber sigur úr bítum í nafnakeppninni miklu (sem er í gangi btw)

svo náði lafan sér í nýja alvöru vinnu, sem er algjörlega út úr karakter fyrir mig en einhverntímann verður maður að fullorðnast...

en nýjasti meðlimurinn í löfu-fjölskyldunni er hún LÆÐA en hún er 21s gíra stelpuhjól, grátt og bleikt með körfu að framan! (myndin á alls óskylt við textann)


en sumt breytist aldrei og er ég hrædd um að myndirnar sem teknar voru á ferðalaginu í ekvadorinni séu týndar a la ólöf en leit stendur nú yfir.

með von um gott veður á morgun.
lafan og hinir meðlimirnir.

7 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Læðan er 24ra gíra.. Bara hafa það klárt

Nafnlaus sagði...

hahaha hvað ertu búinn að detta oft???

hey þegar ég kem heim ætlaru að reyða mig út um allan bæ einsog í gamla daga hahahaha
good times good times!!!

kossar og knús frá ástralíu:*

Lafan sagði...

óskar, noh það er ekkert annað skjús mí :) 24ra gíra að bjöllunni ótaldri. mjög snotur læða.

bobby, tja hvað heldur þú, hef reynar ekki dottið ennþá 7913 en það er kannski af því að ég hef ekkert hjólað ennþá (vantar lás...) en manni ætlar að koma með línuskautana okkar!!! NAUTHÓLSVÍKIN HERE WE COME

kossar og knús til ástralalíu :)

miss júúúuú

Nafnlaus sagði...

ZAD12 er flottur en hjólið á nú vinninginn! EInhvernvegin fer þaÐ þér svo vel að vera á svona röff stelpu hjóli! hahaha
Karfan óborganleg!!

Erla Ósk sagði...

Hæ elskan... og til lukku með allt nýja dótið þitt. Sakn.

Nafnlaus sagði...

hey hvenar kemur manni???

Lafan sagði...

maggs... takk takk. já mér finnst hjólið fara mér vel. núna vantar mig bara lás. fokking europris!

erla mín... sömuleiðis, hvenær fær maður svo að sjá þig??? ég er búin að næstum því plata becky!!

bobby bobby bobby in love in love in love, manni kemur 3ja júní!!! taktu dabba með svo þeir geti verið memm haha :) miss júú