fimmtudagur, október 23, 2008

Já, við tókum slátur og mössuðum þetta með Dúnu bóndó og Ágústu húsó á kantinum :)

Hérna er mynd af herlegheitunum (stolnar frá Dúnu duggönd á fésbókinni)



Ekki sé ég neinn ælusvip á þessum myndum og hef ég ekki séð hana Dúnu svona glaða lengi og prófessionalismi Ágústu var ótrúlegur. Þetta var algjört hitt og ekki spurning um að gera þetta sama að ári, þá kannski bara að vera doldið wild og taka 5 slátur.. og vera kannski með annað en heftara til að loka gervivömbunum (og kannski nóg af vömbum en síðustu tveir keppirnir af blóðmörinni fengu að dúsa í fyrrverandi nælonsokkabuxunum mínum....)

Svo er það bara að smakka, hef ekki þorað það ennþá....

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég held ég hafi sjaldan ef ekki aldrei verið jafn hamingjusöm og á þessari stundu :)
Hlakka til næstu sláturgerðar!!!

Nafnlaus sagði...

aetlaru ad taka slatur fram ad jolum???

Erla Ósk sagði...

jæja Ólöf... fer ekki að koma blogg? :) - ég veit, kemur úr hörðustu átt ;)
Gaman að spjalla við þig í gær! Hlakka svo til að sjá þig um jólin!!! Kveðja, Erla - sem líður miklu betur í dag :D

Nafnlaus sagði...

Ertu búin að kíkja eitthvað á afraksturinn?? verðum eiginlega að hittast og elda þetta saman...