Homo erectus... Homo sapiens... Homo hvítir, Home svartir.....?
Hef verið að lesa Lifandi Vísindi undanfarið eins og ég fái borgað fyrir það og er búin að pæla mikið í einu. Ok, ef að við erum öll komin af homo erectus, homo sapiens og co hvaðan koma þá allir ólíku kynstofnarnir, eins og til dæmis svartir, gulir, hvítir og dökkir? Varð einhver stökkbreyting á genunum í t.d svörtum... Er þetta tengt lifnaðarháttum og kannski umhverfi? Ég hef reyndar ekkert reynt að afla mér upplýsinga um þetta en mér finnst þetta bara svo magnað, upphaflega vorum við öll svipuð en í dag svo ólík. Svo er líka gaman að spá hvort að eftir mörg þúsund ár verðum við ekki öll bara orðin eins aftur??
Já það er margt skrýtið í kýrhausnum... En annars er bara allt gott að frétta af mér, er á fullu í boltanum þó svo að ég geti ekki blautan. Bráðum fer ég að játa mig sigraða í þessari baráttu, ég er útbrunnin og ein af þessum sem voru efnilegar en náðu aldrei langt!
Svo er bara komin helgi, ekkert djamm á manni núna því að læk æ sed ekkert djamm fram að versló... lofa. Skari bró fór til Danmerkur í morgun og vona ég að hann komi ekki heim með danska mágkonu fyrir mig... því þá neyðist ég til að læra dönsku.
jæja hef ekki tíma í þetta, það var að koma ný grein um homo erectus í nýjasta tölublaði Lifandi visindi. Here I come to save the woooooooooooooooooorld...
Engin ummæli:
Skrifa ummæli