sunnudagur, mars 12, 2006

kominn tími á pistil...

ég veit ég hef verið löt að koma með fréttir af ævintýrum í kanalandinu, þannig að hérna kemur smá runa af hrakförum, bálförum, sam.. nei djók og ævintýraförum Löfunnar:

**er sum sé farin að feta í fótspor föðursystra minna og vinn sem sjálfboðaliði við spænskukennslu í 7 og 8 bekk. skólinn sem ég vinn í er almenningsskóli í frekar fátæku hverfi með um 80% afrísk-amerískum börnum, 15% asískum börum og 5% hvítum. sem sagt mjög skemmtilegt og alþjóðlegt vinnuumhverfi, en einnig þar sem þetta er frekar fátækt hverfi þurfum við kennararnir að passa það að nemendurnir mæti ekki útúrdópaðir í skólann og séu ekki að selja dóp á skólalóðinni (böstaði einn um daginn með eina feita á kantinum og fór alveg í kerfi!) en ég er einnig búin að eignast nokkrar vinkonur í bekknum (þið vitið maður á alltaf einhver uppáhöld) og eru þær stelpur búnar að nefna mig "Ó" og er ég offfísíallí komin með ghettó nafnið "Ó". svo var ég spurð um daginn hvort ég hefði farið í lýtaaðgerð á nefinu í miðri skólastofunni, það sem maður lendir ekki í!!

**svo veit ég ekki hvort að þið kannist við kana-frasann "spring-break" en í fáum orðum þá er þetta eina afsökun kanamanna til þess að senda ungmenni á heitar strendur að drekka bjór á miðri skólaönn, ekki kvarta ég!! þar sem ég mengast af kanaveikinni með hverjum deginum ákváðum við herbergisfélagarnir að safna smá pening, finna góðan díl og skella okkur hvert annað en til MEXÍKÓ!! förinni er heitið til Puertovallarta og verð ég sum sé flatmaga í 30 stiga hita í 8 daga (fer á morgun)

**svo svona að lokum smá hrakfallabálkaklaufaasnaskapssaga. mætti í tíma síðastliðinn fimmtudag svona frekar í þynnra lagi sökum endalausra afmælisveislna sem manni er boðið í. heníveis, ákvað að taka mig saman í andlitinu og mæta í tíma þrátt fyrir fyrrnefndar ástæður, sest niður, held andanum inni (alltaf að virða náungann, hehe) tek upp bækurnar og er tilbúin að glósa eins og ég fengi borgað fyrir það. allt í einu gengur hávaxinn kennarinn upp að mér (sem ég hef aldrei séð áður bæðevei) og segir djúpri röddu "miss, are you sure you are in the right place" neiiiiiiii hvur andskotinn, haldiði að ég hafi ekki farið inn í kolvitlausa skólastofu í miðju prófi!!! með rósroða í kinnum skelli ég upp úr mér vandræðalegum hlátri og segi... "ohhh haha sorry" og með skottið á milli lappana asnast inn í rétta stofu, fimm mínútum of sein.

já eins og þið sjáið þá er gleðin fundin á ný eftir margra vikna fjarveru, sumarið er að koma og ég er að fara til mexíkó á morgun! verður örugglega ekki eins gaman að fara til mexíkó án benító júarezzz og margarítunni, en ég reyni mitt besta með oppeinheimer, leahey og hinum kanarassgötunum

lifið heil og kids, dont do drugs...
become a rock star and they give you them for freeeeee!!

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ohhhh hvað ég væri til í að vera að fara til Mexikó núna !!! En sem betur fer er stutt í (vonandi gott) sumarið.

En þetta er þér alveg líkt að vera ekkert að pæla í því hvaða stofu þú værir í ...híhíhíhí

En góða ferð og ég hugsa HLÝTT til þín ;)

Nafnlaus sagði...

tequila bíatz;) er á leið suður, svo london og ætla að drekka endalausan bjór og missa vitið, enn einu sinni!!! combrende;) svo er það alvaran sem tekur við, þú ert orðin fyrirliði hér;) hehe

Nafnlaus sagði...

YOU VE BEEN HIT BY THE

|^^^^^^^^^^^^|
|BEAUTIFUL truck | |""";.., ___.
|_..._...______===|= _|__|..., ] |
"(@ ) (@ )""""*|(@ )(@ )*****(@

ONCE YOU VE BEEN HIT, YOU HAVE TO HIT 8 Beautiful People IF YOU GET HIT AGAIN YOU LL KNOW YOU RE REALLY BEAUTIFUL! IF YOU BRAKE THE CHAIN, YOU LL BE CURSED WITH UGLYNESS FOR 10 YEARS SO PASS IT HIT WHO EVER YOU THINK IS BEAUTIFUL!


ojj það er eins gott að þú sért að gera góða hluti þarna í mrxicólandi! Viljum ekki vita af íslending sem lætur aðrar þjóðir taka sig í drykkju!! Skemmtu þér blautt þarna í spring brake elskan!!
Hvernig væri svo að fara hringja full í litlu systur???

Magga Stina Rokk sagði...

Held að það sé komin tími á pistil 10 sinnum eftir þennan. leyfðu nú forvitnu fólki að hnýsast um líf þitt.. láttu ekki svona!!