föstudagur, janúar 25, 2008

þvílík vika...

*vinkonu-"emergengy" hittingur. ohhh dramalisjösss...love it!
*bruna heim í band-brjáluðu veðri með duggönd á tilvonandi jarðskjálftasvæði
*er varla farin upp í rúm þegar jörð tekur að skjálfa og lafan sér heimsenda fyrir
*í hvert skipti sem ég næ að gleyma mér aðeins dynur annar skjálfti
*lokaútslagið gerði svo seinni stærri skjálftinn og löfus á leið í nýja bílnum í rvk
*borgarstjórn fellur -aftur og dallas skellur á
*mor og far yfirgefa pleisið, enda jarðskjálfta og eldgoss að vænta (segir völvan)
*ákveð að gera mig sæta og fer í ljós. skaðbrenn.
*hið venjulega grindavíkurrok gerir vart við sig og lafan nær ekki að festa svefn
*jarðskjálfta og óveðurs hræðsla gerir vart við sig
*hrekk upp um miðja nótt, veit ekki hvort jarðskjálftinn væri kominn eða óveðrið
*kemur á daginn að það var óveðrið og bílskúrshurðin FÝKUR UPP
*lafan á náttförunum berst við vindinn og snjónn og hefur betur -lokar hurðinni
*baráttan við sætuna heldur einnig áfram og enn sigra ég -búin í lit og plokk
*vísiskaffið gengur sinn vanagang og ég slæ í gegn með heitum réttum
*gebba pimpar mig í blondínubransanum. æm bakk!

lít á endanum út eins og gellan í bachelor með ljósa hárið og gervibrúnkuna. vantar bara síló í varir og kabúmm. ég hreppi bachelorinn, an officer and a gentleman

manni kemst ekki á klakann á morgun út af grindavíkurrokinu. reynir aftur á sunnudag.

og svo eitt í lokin... til hamingju með afmælin Óskar og Kristín á morgun og Patti litli hinn!!

löfus með áhyggjuhrukkur eftir vikuna...

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Alltaf svo gaman hjá okkur þegar við erum ad lita þig, gera e-h tilraunir og hljæum eins og vitleysingar hahaha
vonum ad Manni komist á morgun!!
Sjáumst í kvöld sæta mín

Nafnlaus sagði...

jahá.. greinilega mikið stuð í Efstahrauninu.
Já og til hamingju með brósa í dag. já og hitt ammælisbarnið í dag. Litla frænkan sem við rífumst um að fá að passa. hehehe..
Já og Óskar ef þú ert að skoða þetta til hammó með dagó :D

Bjöggan kveður úr snjónum í rvík,

Nafnlaus sagði...

Vó hvað þú tókst þessa ljótu í nefið í kvöld!!
Þú varst svo gordjölissus!!
mmm mmmmm
haha

Takk fyrir magnað kvöld! þetta var alltof gaman!! :D

Nafnlaus sagði...

flott blogg ;) það var ekki annað hægt en að veltast pínu lítið af hlátri hehehehehe. arna

Nafnlaus sagði...

mér finnst þú samt alltaf jafn sæt Ólöf ;) híhí