þriðjudagur, mars 11, 2008

Sunnudagur til sigurs, mánudagur til mæðu, þriðjudagur til þrautar, miðvikudagur til moldar, fimmtudagur til frama, föstudagur til fjár og laugardagur til lukku!

Í dag er því þrautardagur og mín búin að leggja fyrir mig hverja þrautina á fætur annarri, með þó misgóðum árangri. Ég "sectretaði" snjóinn burt, ímyndaði mér hvernig mér liði þegar ég sæi í bílhúddið snemma á morgnana án þess að þurfa að hafa hann í gangi í hálftíma, en allt kom fyrir ekki. Ég hljóp eitt stykki hlaupaprógram í tuttugu mínútur, sem á pappírunum var mjög auðvelt fyrir svona íþróttamann eins og mig. Blóðbragð, rauðar kinnar og endalaus sviti (sem er enn að hrjá mig) var útkoman. Næsta þraut er tiltekt og skipulagning fyrir búferlaflutninga, en daman ætlar að setjast smátt og smátt að í höfuðborg Íslands þar sem hún ætlar að reyna fyrir sér á hinum alþjóðlega vinnustað AFS.

Annars mun ég ferðast til Minneapolis á föstudegi (til fjár), fara til Ekvador á Þriðjudegi (til þrautar... ó boy) fara tilbaka til Minneapolis á fimmtudegi (til frama) og koma svo til Íslands á sunnudegi (til sigurs!) Ég fæddist á laugardegi (til lukku) sem ætti að gefa mér forskot á lífið... allavegana svona á pappírunum!

en byrja sem sagt að vinna á morgun, miðvikudegi til moldar, vonum að ég verði ekki sett í neins konar moldarvinnu, eða aðra grófa sveitarvinnu...

ólöf til sigurs!!

8 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Nau nau nau fæddist ég þá líka á laugardegi til lukku?
Askoti gaman að heyra það!

skemmtileg og enn og aftur.. fróðlegur pistill!!

Nafnlaus sagði...

hæ Ingijörg hér.. ég varaði ´búin að skrifa helling að einhverjum sem meikaði ennginn sens, svo er é lika doldið lesblind og þetta allt komid i klessu!
En ég er rik.. og fimmtudagur!
þetta varð það sem ég munaði!

Nafnlaus sagði...

hæ þetta er magga ef Ingibjörg þykist vera ég hérna niðri er þetta ekki ég!

Nafnlaus sagði...

þið eruð svo vitlausar stelpukindur!
Ég er að kíkja í heimsókn ;)

Nafnlaus sagði...

hehe kannast sko alveg við þetta hlaupaprógram:) ekki svo auðvelt!!!!og já til hamingju með nýju vinnuna, lýst vel á þig þarna:)

Nafnlaus sagði...

ég vil nú að þú skoðir þetta betur....getur varla verið að þú hrakfallabálkurinn hafir fæðst á laugardegi til lukku :S hmmmm

En það er gaman að spá í þessu.

Nafnlaus sagði...

Magga get a life!!

Nafnlaus sagði...

Hey, til hamingju með vinnuna.

Keep on the good work girl. Hlakka til að sjá þig á þriðjduaginn í stuði. já eg er að koma í klippingu suðureftir, þú kíkir kannski á skvísuna. Já, svo er nýtt blog. Loksins ;)

Bjögga