sunnudagur, júní 01, 2008

Las í Nýju Lífi skemmtilegan pistil um Íslendinga og ofurkrafta þeirra. Vigdís Finnbogadóttir er gyðja tungumála og Jón Páll hefur ofurstyrk.

Fór því að pæla í því ef að við vinkonurnar værum ofurhetjur, hverjir kraftar okkar væru.

Guðrún Sædís Harðardóttir, f. 10. júlí 1982.
Dúna gæti leyst fleiri glæpina á fætur öðrum með því að rekja ættir fólks. Það kemst enginn undan henni!
-súperkraftur: ÆTTFRÆÐI

Ingibjörg Jónsdóttir, f. 19. ágúst 1982.
Bobby getur komið sér, mér og öðrum út úr klípu/inn á staði sem er ómögulegt að komast inn. Með ótrúlegum hæfileikum í smjaðri getur hún allt!
-súperkraftur: SMJAÐUR

Gerður Björg Jónasdóttir, f. 22. mars 1982.
Gebba getur gert kraftaverk með skærin og gæti bjargað sér og öðrum þegar hætta steðjar að. Hvort sem það er útlitslega séð eða raunverulegt.
-súperkraftur: SKÆRAFIMI

Margrét Kristín Pétursdóttir, f. 18. september 1982
Magga er landsmönnum kunn sem einn fremsti förðunarfræðingur landans. Hún getur breytt manni í konu, fólki í dýr og vatni í vín.
-súperkraftur: UMBREYTNGAR

Ólöf Daðey Pétursdóttir, f. 18. september 1982
Lafan hefur ferðast um land og fjöll og gæti margmenningarleiki hennar komið sér vel þegar í vanda er komið.
-súperkraftur: ALÞJÓÐLEIKI

nú hefur þetta verið tekið saman og það er aldrei að vita nema 5some gæti bjargað heiminum og verndað samfélagið með ættfræði, smjaðri, skærafimi, umbreytingum og alþjóðleika!

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hahha Já það er ágætt að geta breytt vatni í vín allavegana!!

Brilljant! Ættfræðin hennar Dúnu er nátturulega ósigranleg!!

Lafan sagði...

já hún fer klárlega fyrir hópnum :) en þú ert algjörlega mikilvægust!

Nafnlaus sagði...

Ættfræðin getur komið manni langt..
En það sem vellur upp úr þér Ólöf :)
Held það sé ekki spurning að við ættum að sameina krafta okkar og taka að okkur að bjarga heiminum...

Erla Ósk sagði...

Þið eruð stórkostlegar þið vinkonurnar...

Lafan sagði...

haha já það er sko hægt að bjarga mörgum með þessum ofurkröftum. og erla, ef að þú værir ofurhetja þá væru þínir kraftar klárlega SKIPULAG og þú gætir séð í gegnum hvern glæpamanninn á fætur öðrum, bara á því hvernig hann hugsar og SKIPULAGT það út frá því múahaha.

held ég sé búin að vinna of mikið :)