þriðjudagur, desember 27, 2005

Luó Lán... QUESTIONMARK???

sælar. vona að jólin hafa farið betur með ykkur en löfuna, sú er búin að háma og háma, vaka og vaka og sofa út fram eftir öllu. núna þegar ég þarf lyftara að koma mér á milli staða þá er ekki seinna vænna en að skipuleggja æfingaprógram og afeitrunarkúra í fleirtölu. búið að vera drullupussugaman og ég trúi ekki að ég búi útí útlöndum svona langt í burtu frá skemmtilegasta fólkinu í heimi (og því ruglaðasta) a.k.a grindvíkingum!!!

en framundan er ekkert lát á ólifnaðinum, frænkuhittingur dauðans sem verður ekki síðri en undanfarin ár og er nefndin í ár skipuð af undirritaðri, Ágústu Hejdo og tvibbalingnum sem lafan á augabrýr sínar að þakka... og ekki sé talað um áramótin sem eru ávallt haldin hátíðleg á efstahrauninu þegar gústi, pabbi, maggi, albert og allir hinir etja kappi hver þeirra sé með flottustu flugeldana!!

en þar sem maður er bara í fríi verð ég víst að fara einn hring og hitta ættingjana, því ég er svo skemmtileg...

ætlið þið að kommenta, QUESTIONMARK???

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

En ég heppin að vera ekki grindvíkingur lengur!!því ég er ekkert rugluð hvað þá skemtileg;) hehehehe en ég held að þessi 16ár sem ég bjó þarna hafi nú samt náð að fokka mig doldið upp(sannaði það þann 21.des!!) en hvað ætlaru að gera um áramótinn,QUESTIONMARK? HAHAHAHAHA

Lafan sagði...

hahahhaaha bobby mín, þú ert sko rugluð og ógeðslega skemmtileg, grindvískt út í gegn:)

hvaða vitleysu ertu að fara að draga mig út í á áramótunum questionmark???

þú veist að ég er til í allt!!

Nafnlaus sagði...

Hvar keypti Davíð Ölið?

Lafan sagði...

nú... af golíat? hver át rauðhettu?