Why does it alwyas rain on me?? It is because I lied when I was seventeen??
Vaknaði með þetta þunglyndis lag á heilanum í morgun og bölvaði símanum fyrir að snúsa bara í sex í mínútur í staðinn fyrir mínar venjulegu tíu á hinum símanum.. moðer fokker...
En viðburðarík helgi að baki og Vísir hf. orðið fjörtíuáraogþriggjadaga gamall, en ekki hrukku að sjá á kjellinum... Fórum á kostum í línudansinum, þar sem eins manns dauði var annars manns brauð, eða réttara sagt annarrar konu brauð og fór hin umrædda kona á kostum og fékk fýldustu andlitnin á Broadway til að missa sig og skella upp úr af hlátri og kátínu. Svo fóru Þorgeir Ástvalds og Raggi Bjarna hamförum með lagið Ég fer í fríið og fengu áhafnir, starfsfólk og velunnara Vísis til að rísa úr sætum, upp á borð og klappa líkt og þeir væru mættir á Bon Jovi tónleika... babababababababa babababababab babababababaaaaa. Nakk, þvílík stemning!
Í gær tókum við svo Víði frekar létt, 11-0 þar sem J-Lo lét sér nægja að vera með 3-4 stoðsendingar og bölvaði í hljóði fyrir skipulagsleysi Íslendinga þar sem stoðsendingar í fótbolta skipta nákvamlega engu máli ólíkt kanarassgötunum sem grafa upp alla tölfræði sem möguleiki er á og vita hæglega hvað ég missti marga bolta frá mér í leiknum með Macalester á móti St. Thomas haustið 2003...
En dagurinn í dag mun einkennast af launareikningi, grönnum og æfingu, ásamt því að huga að því hvað ég á nú að taka með mér til Mejíkóóó þar sem mikið verður í húfi og gaman að sjá hver vinnur brúnkukeppnina!!
Jæja farin að kalla þetta gott, Þingeyringar verða að fá launin sín á réttum tíma og ég er búin að mæta korteri of seint í vinnuna síðustu tvær vikur.
pís
7 ummæli:
Sælar er það vegó eftir æfingu í kvöld við verðum að kíkja í smá sukk áður en þið farið a call a meeeting all right vertu í bandi
en ekki hvað;) auðvitað tökum við fund á þetta áður en mexíkó skellur á... djöfll vildi ég að ég gæti tekið þig með í ferðatöskunni, þú myndir alveg ráða við það er það ekki???
Maður toppar svo sjalfan sig á 50 ára afmæli Vísis
jæja, helduru að þú þurfir að vera að skreppa frá þá til að gefa krakkaskaranum sem þú verður nýbúin að eignast... haha það væri gaman að sjá:)
ég verð enn við sama heygarðshornið, sóló og flott á því.
Vá hvað 2015 verður skemmtilegt ár!!
Steik hvað.. þú ert bara steik!!! ;)
hahaha ertu nokkuð hörundsár út af þessu með nafnið linda mín:) ég meina, hver klippir sokkabuxrnar af sér í staðinn fyrir að fara bara úr þeim eins og venjuleg manneskja...
ég meina, ég er svo venjuleg að það er næstum óvenjulegt!!
Skemmtið ykkur vel í Mexico !! Ég öfunda ykkur bara góðlátlega yfir að vera þarna !!
Skrifa ummæli