þriðjudagur, maí 02, 2006

sit hérna í stofunni heima hjá mér með samvaxnar augabrýr, skil niður á axlir, bauga niður á kinnar, kílóin í hundraðatali og hugsa með mér af hverju ég sé á svona miklum bömmer... og svo ekki sé minnst á tvær fimmtán blaðsíðna ritgerðir sem eiga að vera tilbúnar á borðinu hjá rodriguez og gonzalez á morgun og hinn... og þær fimm sem ég er búin að skrifa...

í miðju þunglyndi datt mér svo í hug að reyna að gera eitthvað í stöðunni. hárinu og augabrúnunum verður ekki bjargað, ritgerðin tekur alltof langan tíma, aukakílóin hverfa ekki einn tveir og búmm... og hvað er þá til ráða annað en að hvíta á sér tennurnar með svakalegri amerískri aðferð!!! við kiwi ákváðum sum sé að hendast í apótekið og kaupa ódýrastu hvítunarmeðferðina sem við fundum of vualá! þarna var það, "rembrant white" gómur, efni og leiðbeiningar. 20 mínútur í, taka út. bíða í tíu og svo gera það aftur, fjórum sinnum. viti menn við ösnuðumst til að fara eftir þessum ofurleiðbeiningum og til þess að gera langa sögu stutta þá er ég sjálflýsnadi eins og ross var í vinum á deitinu með gellunni (sleppti samt leðurbuxunum í þetta sinn)

þannig að núna er bara að drekka nógu mikið kók, kaffi og allt sem er litað til þess að koma sér á jörðina og verða mér ekki að athlægi á almannafæri!

en á meðan að á öllu þessu stóð náði ég samt að henda myndum inn og bjögga mín there you go!

svo vil ég óska Lilju Katrínu rúsínu og Lindu Björg kjúttípæ innilega til hamingju með afmælin,

lafa smæl kveður í bili

7 ummæli:

Erla Ósk sagði...

List vel a ad myndirnar seu komnar inn :)

Svona svona, bara nokkrir dagar eftir af profunum... og svo verdur til Brussel og svo utskrifastu! Skil ekki alveg hvadan thetta thunglyndi kemur... ;)

Nafnlaus sagði...

Let´s go Twins ....

Lafan sagði...

erla: ja takk takk fyrir reddinguna:) vihi tihi!!! buin ad finna gledina a ny!!!!

agusta: hahahaha geggjud mynd:)

Nafnlaus sagði...

Hahaha Ólöf þú verður að taka mynd af tönnunum !!! Ég er ekki viss um að ég þori að prófa white strip-ið sem þú keyptir fyrir mig haha ;)

Lafan sagði...

hahahaa.. nei þetta var einhver sprauta eða eitthvað, hitt er alveg saklaust:) haha

Nafnlaus sagði...

Hjúkkett....katla ætlar nefninlega að láta mig vera tilraunadýrið,,,alltaf er ég tilraunadýrið!!! :)

Lafan sagði...

haha...ja sja hvad thu getur hlegid mikid an thess ad pissa i thig:)