þriðjudagur, maí 30, 2006

country roaaaaad take me home...

fissjissell, komin hjemme po þ.e.a.s ameríkulega séð, en við runnum í hlað níu í gærmorgun eftir um átján tíma keyrslu frá D.C bebí!! ferðin tókst með eindæmum vel og fá allir þeir aðilar sem gerðu hana að veruleika kærar þakkir (aðallega kollan hennar Erlu og vííííísa skvísa!)

en mig minnir að síðast þegar ég settist niður og gaf ykkur smá fídbakk þá var óskar (yngri) nýbúinn að gefa skít í amerísk stjórnvöld (bókstaflega) og við á leið í pentagon. drisselfidjissell, nakk hvað þetta var mögnuð heimsókn. þegar komið var í inngang byggingarinnar þá blöstu við okkur verðir (í tugatali) vopnaðir m16 (engin ábyrgð er tekin á nefnagiftum vopnanna-ritstjórn) en inn á milli þessara varða þá voru einkennisbúningaklæddir menn, úr öllum deildum hersins og jakkafataklæddir menn sem voru örugglega CIA eða eitthvað (við í ritstjórninni gefum okkur bessaleyfi til þess að fylla í eyðurnar til þess að gera söguna áhugaverðari) eftir af hafa verið yfirheyrð, röntgenmynduð og skráð niður var okkur svo loksins hleypt inn þar sem beið okkar ungur herramaður svakalega fínn í spari-vinnubúningnum sínum og fengum við túr um pentagon bygginguna sem er um 17 mílur löng (je je you go tme, ég kann ekkert að reikna það í kílómetrum) og í henni vinna um 20.000 manns held ég. allir gluggar eru með "hlerunar" vörn og á skrifstofunum má ekki vera með kveikt á gemsanum því það gæti sprengt upp bygginguna. rumsfied var því miður ekki við, en varavarnarmálaráðherrann, Gordon England var við og tók í hendina á okkur og gaf okkur meira að segja tíma til að taka hópmynd með honum!!

svo fórum við út að borða með hershöfðingjanum (pabba wissler) á fínasta veitingastað sem er einungis ætlaður hærra settum og fengum þriggja rétta máltíð í boði bandarískra borgara:)

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Það er aldeylis!! Bara komin á topppin í USA;)ha ha
En ég heimta myndir fyrst þú ert komin "heim"!!

Og þú ert ekkert að grínast með tanið hahaha:)

Og farðu svo að drífa þig á klakan skvís farin að sakna þín helvíti mikið:)

Lafan sagði...

æi beibs... ég veit það, ég vann brúnkukeppnina!!!!!!

og svo verð ég komin heim á miðvikudaginn!!!! þannig að ég heimta bíóferð eða fund á vegó:)

love you miss you og allur pakkinn

Nafnlaus sagði...

hey sæta!!
Jiii.. þú ert ekki að grínast með brúnkuna. Á maður að að þora að láta sjá sig með þér hér á klakanum.,.. ;) Ég samt hlakka GEGT mikið til að hitta þig aftur ;) Og við förum audda í bíó líka. Ég man ekki betur en Bjöggan hafi fengið viðurnefnið Bíófélagi dauðans hérna einhverntíma ;) hehe. hanyways.. Sjáumst sem allra allra fyrst eftir að þú kemur.. svo sjómannadjamm næstu helgi..
Kveðja, Bjöggan

Lafan sagði...

haha.. ja bjogga min... eg er ereyndar ekki svona brun lengur... en eg er ad vinna i henni:)

ja bio bio bio!! og nottla sjomo naestu helgi!!