miðvikudagur, júlí 16, 2008

Allt í steik vegna sumarfría!!

Óplokkaðar brúnirnar þyngjast verulega þegar maður er búinn að tapa snyrtifræðingi sínum í barneignir.

Rótin á fallega ljósa hárinu mínu er komin í gegn og veit alheimur að ég sé "lituð" ljóska nú þegar hárgreiðslufræðingurinn minn hefur tekið sér frí vegna sólarinnar heldur hún víst áfram að lengjast og verð ég brátt tvílituð um hárið. Sérlega smekklegt.

Læknirinn minn ákvað að taka sér frí fram í águst og verður því ekvadorska malarían að bíða lækningar þar til doksi ákveður að snúa heim úr sólinni.

Sú sem sér um visa-reikninginn minn ákvað einnig að skella sér í kæruleysið og hefur það því hlaupið um IKEA villt og galið, alveg eftirlitslaust.

Manni tók sér líka frí frá málarastörfunum og því eru þrír ómálaðir blettir á húsinu sem málast verða fyrir rigningartímabilið.

Sú eina sem ekki tekur sér kæruleysislegt frí er undirrituð, enda gegni ég mikilvægu og ábyrgðafullu starfi sem móðursystir og frá því verður ekki hlaupið!

Þið ykkar sem eruð að fríast. Skammist ykkar!

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hahah sorrý!
Þú ert bara flott með unibrow og tvílitað hár!
Verður bara trendsetter! ;)
Takk fyrir pössunina í gær :)

Lafan sagði...

hahaha já. það er aldrei að vita. kannski ég hætti alfarið að raka mig undir höndunum og nota sápu ?? :)

það var lítið með pössunina, anytime!! ég hef víst svo svakalega góð áhrif á meltinguna :)

Nafnlaus sagði...

hey ég fæ kannski náðun þar sem ég e rí fríi í launuðu vinnunni en þvotturinn og allt klabbið bíður heima alveg ólaunað 24 tíma verk ;)

En ég hef alltaf verið á þeirri skoðun að maður á að koma til dyranna eins og maður er klæddur :D
Mér finnst þú alltaf jafn mikill snillingur hvort sem þú ert með stórar augabrúnir, hár undir höndunum eða undirhöku ;) haha

Nafnlaus sagði...

Laugardagurinn er klár!!!
Skottan fer upp í bústað og ég er því til í hvað sem er .....
Vúhú