miðvikudagur, mars 17, 2004

Hmmmmmm

Já ég veit ég fór ekki í vinnuna í morgun, klukkan bilaði og það var enginn annar til að vekja mig. En ég skúraði samt í gær uppí Vísi og varð vitni að því þegar tvö ungmenni voru handtekin með dóp í fórum sér og þau voru ekki deginum eldri en 13 ára! Djísús bobby, hvar endar þetta eiginlega??? Við Magga og Hrefna Magg sáum þetta gerast frá a til ö og vorum eins og ég veit ekki hvað að reyna að fatta hver þetta væri. Þegar löggan yfirgaf loksins staðinn með "börnin" afturí þau eltum við hana til að sjá hverjir þetta væri en urðum enu nær því að þetta var utanbæjarfólk. Magnað Max.

Svo er það fótbolti og vax í dag:) erfitt líf að vera í skóla....

og eitt enn, Gumby Gumbz til hamingju með daginn, bara loksins orðinn 23ja, tveimur árum eldri en ég

Whooopa

Engin ummæli: