miðvikudagur, mars 03, 2004

Planið framundan...

Miðvikudagur: Skóli (draga Möggu á asnaeyrunum memmér), okkur söstrum boðið í mat, The Tap.

Fimmtudagur: Sleppa skóla (kommon þetta er nú bara einn skitinn frönskutími), fara að versla ipod handa reggí mömmu og chill out daddy, versla smá meir handa píunni og Plums.

Föstudagur: Mæta í skóla, fara í próf, græja heitapottapartý (aðallega fara á stúfana og finna svona overall swimsiut svo að ég ofbjóði nú ekki fólknu með öllu mínu heilögu) út að borða með þessum blessuðu systrum (óskar farðu nú að koma þér yfir á meginlandið, þær geta nú verið too much stundum... nei I JOKE!) HOT TUB PARTY!

Laugardagur: Fara í paradís, a.k.a. Mall of America, bara svona upp á tilefnið, kaupa hellling af Victorias Secret og Forever 21 dóti. Fara fínt út að borða með systrum og vinum (ef við verðum ekki búnar að stúta hver annarri by then...) og svo niðrí bæ að hrista af okkur slenið....

Sunnudagur.... blogga meira þá

Ó-Lafan

Engin ummæli: