þriðjudagur, febrúar 14, 2006

nú er glatt á hjalla hjá löfunni.is, ekki er hún aðeins búin að redda tölvinni heldur hafa tveir bestustu útlendingavinir hennar snúið aftur frá írlandi og nýja sjálandi, svo er ég svona allt að því komin með framtíðarplan (allavegna fram í 2007) og er hele familían (mínus atvinnumaðurinn sem er upptekinn við eiginhandaráritanir) væntanleg til draumalandsins á föstudaginn!! maður biður ekki um meira... tja jú kannski peninga og mjónuskap...

en á morgun er hinn alræmdi Valentínusardagur sem er að gera allt vitlaust hérna vestanhafs og gerðum við meghan magnúsi og Kiwi smá grikk með því að kaupa 30 helíum hjarta blöðrur,og blóm, létum senda þær heim til þeirra á morgun og keyptum einn prufu-dans-tíma í salsakennslu um kvöldið, haha!

læt ykkur vita hvernig það gengur...og eitt að lokum, vil óska Pálmari til hamingju með afmælið á morgun:)
lifið heil

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þú ert frábær, það sem þér dettur ekki í hug stelpa! kveðja Aníta

Lafan sagði...

segir hver... drulluflott sjalf!

haha hvenaer a svo ad koma i heimsokn og shop till you drop??