laugardagur, október 07, 2006

Föstudagur...Fullt tungl...Skrýtnir hlutir gerast!

Shjet. Þvílíkur dagur sem liðinn er. Byrjaði alltsaman á beibísitting djobbinu mínu. Ég mæti galvösk að takast á við ofur-óþekktar-ormana og fæ þær fréttir að ég eigi að vara mig á barnaníðingi sem er víst gangandi laus um göturnar og spyr krakka um að koma út að leika með sér þegar mömmurnar sjá ekki. Ok. Alltílæi með það. Svo dettur krakkanum í hug að henda heilli klósettrúllu klóstið og stífla allar lagnir með tölu. Ég reyni að redda því og held að allt sé önder kontról jú nó, fer niður og held mínu striki. Svo fer allt helvvvvvv loftið að leka og vatn út um allt! Allt í volli, foreldrarnir koma heim og þurrka húsið... Nú svo fara þau aftur í vinnuna og bara klukkutími eftir. Haldiði að barnaníðingurinn hafi ekki bankað upp á og spurt mig hver ég væri... og svo krípí spurningar. Ég skelli bara hurðinni á hann og læt mömmuna vita að hann sé í hverfinu!!

Hvað var annað í stöðunni en að hitta vinina, fá sér bjór og horfa á svíann spila fótbolta. Þeir töpuðu reyndar, en þá fékk maður sér bara meiri bjór. Við förum svo á djammið niðrí bæ og endum kvöldið á karókísnillanum wissler petissler taka sweet home alabama, öllum að óvörum (við sjáum hann bara allíeinu þarna uppi...haha)

fullt tungl, föstudagur...skrýtið líf!

(og næsti föstudagur er sá þrettándi! ég er að spá í að takamér frí þá og loka mig inní herbergi!)

víðir í garðinum, víðir í garðinum, víðir í garðinum dommíííííí!

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Shit hvað... þú ert greinilega í USA... það fer ekki á milli máli :D
Föstudagurinn þrettándi.. já Ólöf ég held að ´það sé best fyrir þig að taka því rólega.. ;) Sjálf ætla ég að fara í klippingu til Gebbu.. Keyri varlega lofa... :D
Njóttu lífsins og passaðu þig á svona krípi gaurum.. já og syngu með Wiss.. það er gaman :D

Nafnlaus sagði...

ekki veit ég hovrt það skipti máli fyrir þig hvort það sé föstudagurinn 13. eða hvaða annar dagur !!! Þú ert nenfliega óheppnasta manneskja sem ég þekki...svei mér þá ;) En betra að hafa varann á.

Hehe....en kannski hittumst við bara bráðlega...hver veit ;)

Nafnlaus sagði...

Ólöf... -þú ert spes!!
haha reyndu að halda þér á lífi í 16 daga í viðbót!!!

Nafnlaus sagði...

hey búin að panta flug út 23. nóv til 28. nóv....kem fersk beint í útsölurnar með Unnar með mér til að halda á pokunum ;) hehe

Hlakka til að sjá ykkur.

Lafan sagði...

hehe.. já ég hef mig hæga:)

og magga.. spes... haha fyndið orð
petra já við sjáumst sko þá!!!!
bjögga hvenær kemur þú að syngja með honum?