miðvikudagur, október 18, 2006

hafiði einhverntímann lent í þessu?

...bsssssjálað að gera í skóla/vinnu/sjálfsnámi eða hvað það nú er sem við "upptökum okkur" við. nú, svo er skilafrestur á viðkomandi verkefni, hjartað í buxunum, hjartsláttur í hausnum fyrir svefn en sama hvað tautar og raular þá getur maður samt alltaf fundið tíma fyrir allt annað! þegar ég á að vera að gera kennara plan fyrir tíðirnar í ensku handa kínafólki þá tek ég eldhúsið í gegn. fer svo út með hundinn. tek til í herberginu þótt það sé alveg tandurhreint. hlusta á villa vill því ég er með heimþrá. fer svo yfir í salsa gírinn því það er að koma föstudagur. áður en ég veit af þá er kominn tími á project runway og ég ekki tilbúin með verkefnið sem á að fara í skilun á morgun!!!

en man oh man hvað ég fann fyndið vídjó á kvikmynd.is, bara fara í leit og skrifa "nærsýni"

ekki enn búin að skila inn ósama til leyniþjónustunnar, en þegar buddan fer að þynnast þá verður gripið til örþrifaráða og lafan býður á barnum!

segjum þetta gott í bili því ég má ekkert vera að þessu... fallin með 4.9...

8 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hahah þú ert bara fyndinn!!
En ekki örvænta við erum á leiðinni til þín eftir 6 daga holý canolý!!! :D
Náðiru að skila þessu á réttum tíma?
Leiðréttu mig ef þetta er rangt, en ertu léleg undir álagi??.. Tekur bara B.B á þetta í harðindum (beint á barinn)...
-sem gerir mig einmitt svo stolta af þér smúsímús ;D haha

Lafan sagði...

neibb. skiladi thessu ekki "tolvan min biladi"... hehehe

sex dagar... obbobbobb... get hreinlega ekki bedid!!! kem a bleika hjolinu minu ad saekja thig:)

Nafnlaus sagði...

Kannast við þetta að fynna allt annað að gera en að setjast og læra fyrir en á síðustu MÍNOTONUM!!!HAHA

Nafnlaus sagði...

Hahah greyið krakkinn varð bara rangeygður :) en kíktu á "mikil hálka" ég grét úr hlátri yfir þessu haha,.,.,

Lafan sagði...

bobby:) en ekki hvað ohhhh hvað það verður gaman fyrir þig að klára áður en þú kemur... ég skal vera búin með mitt þá líka!!! lofa***

vala matt: haha.. já pottþétt.. kíki á það. eeeeeeeelska kvikmynd.is þegar ég á að vera að læra... eitthvað svo spennó:)

Lafan sagði...

haha... pælíað lenda í þessi (hálku myndbandið...)

klessubílastöff:)

Nafnlaus sagði...

já haha rosalegt,,,fyndnast samt þegar fólkið fór að hanga á bílunum og reyna að skransa hahaha ;)

Lafan sagði...

já eins og það væri að gera eitthvað gagn:) maður myndi samt örugglega reyna þetta ef maður væri um það bil að fara að lenda aftan á einhverjum á nýja bílnum sínum og geta akkúrat ekkert gert¨!!!