fimmtudagur, febrúar 08, 2007

fór á algjöran draum! í gær og fór bjöggan svoleiðis á kostum sem djarfa dansmærin do-do. hef ekki hlegið svona lengi (ekki af þér bjögga mín, heldur frekar af pétri þarna... hann var fyndinn)

svo er komin ný 5some gella, en dúnulíus er búin að eiga fallega stelpu, það eru myndir af henni inni á 5some síðunni. algört krútt!!! til hamingju skvís...

svo fer senn að líða að helgi og ég ætla að halda mig innandyra, hjálpa mömmu að pakka niður (það á víst að fara að gera eitthvað nýstárlegt við efstahraunið) bannað að hringja í mig og fá mig út á lífið. bannað. ég ætla bara að fara í ræktina og drekka heilsudrykki.

svo eru bara tvær vikur í að ég fari til útlanda aftur... við plönum eitthvað skemmtilegt síðustu helgina mína... því það er aldrei að vita hvort maður lifi af píraníu fiskana í amazon fljótinu...

gangið hægt um gleðinnar dyr (og þröskulda, þeir meiða)
blééés.

11 ummæli:

Nafnlaus sagði...

ha? eg er alveg lost..
hvert forstu i gær?
en va 2 vikur i að þu farir ut..
3 i að við hittums og svo 4 eða eitthvað i að þu komir i heimsókn til hollywood!!!!
:D
(var það ekki annars?)
p.s gangi þer vel að halda þér fra búsinu!! ;) hef tru a þer..

Lafan sagði...

já, bjögga var sko stjarnan í óperudeildinni, en þau settu upp svona söngleik með vínartónlist (ekki hugmynd um hvað það er nákvæmlega, eitthvað þýskt:) við anía og valgerður fórum saman, voða gaman:)
en já tvær vikur í að ég fari út, 3 í að ég fari á skíði með þér og 4 í að ég hreinlega komi bara til hollywood!!! magnús keypti miða í gær held ég:) vúhú

Nafnlaus sagði...

hey ætlar lafan að beila á djammi um helgina sénsinn bensinn:) ég ætla sko að djamma og hlakka mikið til:) en ég styð þig samt að vera edrú, þú ert buin að vera svo helv.. blaut:) en við verðum samt í bandi, ég skal ekki draga tig út á djammið....bleble

Lafan sagði...

já! hvað er annars að gerast? hehe stutt í mann... nei nei ég er búin að lof mér í pakkanir:)

en það má samt alveg hittast... verum í bandi skvís!

Nafnlaus sagði...

Hey.. já takk takk.. dúllan mín.. þEtta var rosalega gaman. Gaman að þið hafið skemmt ykkur vel. Og já.. ég var nú kannski ekki stjarnan í óperudeildinni. En ég var allavega smá stjarna ;) hehe...
Já.. hmmm helgin... Pæling hvað maður gerir.. Ég ætla að mála á morgun. :D Ef þig langar að kíkja á mig. Svo verður smá surprise annað kvöld í skólanum... segi frá því á bloginu eftir helgina líklega...
Svo veit ég ekki alveg... bíó á sunnudagskböld??? :D

Lafan sagði...

alltaf til í bíó:) sunday baby! hvað á að sjá???

Nafnlaus sagði...

hmmmm... hugs hugs.... og meira hugs... veit iggi.. einhverja stelpumynd bara :D Veistu um einhverja ? :D

Nafnlaus sagði...

hvernig er með nýju myndina með Will Smith. :D ??

Nafnlaus sagði...

okey va maður haha hefði suddalega verið geim í að sjá bjÖggu!!
Var ekki gaman...
ohh ég sakn astrax þin og teddy!!
Langar á djammið !! Er kannski pinu hifuð eftir hvitvinið með matnum haha!!
En sakna ykkar zega mega mikið!!

Nafnlaus sagði...

Magga. Við fáum þetta á dvd. og þú getur séð þetta þegar þú kemur heim :D hehe..

Nafnlaus sagði...

yessss! Glæsilegt haha