sunnudagur, febrúar 04, 2007

lenti í einu fyndnu áðan. var á leiðinni heim úr bænum eftir helgilanga dvöl á bílnum hennar mömmu (takk fyrir gistinguna Ágústa Hin Fagra). kem svo að stapa og ákveð að hreinsa nú rúðuna með smá pissi og rúðuþurrkum áður en víti grindavíkurvegar tekur við. ekki gekk það betur en svo að rúðuþurrkan BROTNAR af og SKÝST eitthvað út í bláinn. nú við þetta bregður mér svona svakalega að ég rekst aðeins utan í kantinn og rispa felgurnar hennar mömmu!

þetta hefur verið óheillakrákan sem ágústa hin fagra benti mér á í morgun. arrrrrg. svo ákveð ég að baka köku svona til að smyrja múttu. næ mér í nýja uppskrift, skunda út í búð og kaupi allt tilheyrandi. hendi svo í kökuna, inn í ofn og málið er dautt. en NEIIIIIII allt í einu rýkur úr ofninum og það lá við að það kviknaði í efsta laginu á kökunni (og allt hitt er deigkennt og alls ekki tilbúið) ég bregð því á það ráð að skafa efsta lagið af og baka restina. það gekk ekki vel og holótt kakan fer svo aftur inn í ofn. tek hana svo út og hún var glerhörð og gjörsamlega óæt!

það sem eftir lifir kvölds ætla ég að halda mig innandyra og fjarri eldhúsinu.

helgin var samt frábær, takk fyrir mig spænskugellur, gebba sörpræs planeleggjari, erna ofurdansari og bobby fyrir fádæma fimi í keilunni!

lifið heil.

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ Sæta. þú ert alveg ótrúleg. ;)Hefur ofninn ekki verið eitthvað vitlaust stilltur eða eitthvað? Veit ekki.. pæling..
Allavega.. nóg að gera hjá mér. Mála íbúðina.. :D sýna í IÐNÓ... I'm missí bissý ;)
allavega sjáumst vonandi fljótlega ;)
Bjöggan... eða DO DO eins og hún heitir í sýningunni ;)

Lafan sagði...

haha dodo, ertu að gera eitthvað do do.. haha. en ég sá þig svingalingaling í sjónvarpinu, svakalega sæt og fín!

við frænkurnar ætlum sko að koma að sjá þig og ég að sjá íbúðina!

jú ofninn eitthvað bilaður, hlýtur að vera ;)

Nafnlaus sagði...

Hey.. Mér líst rosalega vel á það... Hlakka rosalgea til að sjá ykkur... Sko.. í Grísettuatriðinu heiti ég DO Do ;) hehehe... þá segi ég nafnið mitt ;) með svaka tilþrifum.. semsagt " DO DO" hehe.
Sjáumst sæta...

Nafnlaus sagði...

Hey.. Mér líst rosalega vel á það... Hlakka rosalgea til að sjá ykkur... Sko.. í Grísettuatriðinu heiti ég DO Do ;) hehehe... þá segi ég nafnið mitt ;) með svaka tilþrifum.. semsagt " DO DO" hehe.
Sjáumst sæta...

Lafan sagði...

já... do do er fyndið nafn:)