miðvikudagur, júní 13, 2007

er það akureyri, veiði, eða bull með bobby um helgina???

fór í hlaupatest á æfingu í gær og gjörsamlega sk**t á bitann!! vaknaði svo í morgun eins og ég hefði orðið fyrir valtara og fór virkilega að spá í því hvort meðferð á líkama/aldur/ogdagsformið væru að segja mér að ég er ekki tvítug og tuttugu kílo lengur... en þrjóskan kallar á mig og ég ætla að mæta í kvöld með höfuðið hátt, hvað eru tveir hringiráeftirhinumstelpunum á milli vina?

í þokkabót sneri ég mig á síðasta hringnum en skammaðist mín svo fyrir að vera svona langt á eftir hinum að ég hljóp bara eins og ekkert hefði í skorist og líð fyrir það í dag, með bólgna og bláa löpp...

mæti samt í kvöld!

hver vill leika um helgina?
löfan

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

ég er búin að margseigja þér að mæta á akureyri um helgina stelpa... hvað með það þó að það verði smá djamm á þér... ég var líka stolt af þér að mæta það er annað en hægt er að seigja um mig og mína bólgnu löpp

Nafnlaus sagði...

Ég segi RVK ekki smurning!
hvað er skemtilegra en að vera pisssss með mer ha segðu mér það!!

Og 49.dagar baby:D:D:D:D:D:D

Nafnlaus sagði...

Akureyri!!!
Svo stóðstu þig líka svona ljómandi vel á æfingu!! ;D

49 dagar í eyjar??
Ertu að kidda í djókinu?
AAA

Nafnlaus sagði...

já stelpur mínar... ætli ég ákveði ekki bara að ditsa ykkur allar með tölu og fara í veiði með gömlu :)

48 dagar í dag?????? aaaaaaaaaaa lífið er yndisleeeeeeeeegt sjáðu!!

sjáumst á leiknum :)

Nafnlaus sagði...

Takk fyrir að koma okkur á óvart á akureyri! Þetta var brilljant movie hjá þér!! ;D