mánudagur, júní 25, 2007

ég vil líkjast daníel ...OG ÉG VIL LÍKJAST RUT!

skellti mér í jónsmessugöngu á laugardaginn eftir að hafa spilað minn fyrsta leik með grv city football club (átti að setj´ann einu sinni ef ekki tvisvar og bið ég smaherja mína afsökunar á þessari ryðgun í markamaskínunni...) unnum 4-1 eftir að einum leikmanni leiknis var vikið af velli fyrir að sparka í bútíshakin rassinn á elínborgu og í kjölfarið fékk þjálfari leiknis geðveikiskast, ætlaði að skalla línuvörðinn og drepa bekkinn okkar með fljúgandi vatnsbrúsa sem strauk nefið á okkur efir að hann sparkað í hann. það vildi ekki betur til en að hann hafnaði í áhorfanda, engum öðrum en alberti pabba kötlu og möggu og það ætlaði allt um koll að keyra!!!

en aftur að göngunni... eftir netta svitnun og á toppinn var komið var mál með mönnum að létta á bakpokunum og fá sér einn öllara. jónsi mætti með aulabrandarana og lafan með framíköllin og læti sem enduðu á því að ég var nöppuð biðjandi um araíögri stemmarann daníel og rut og takk fyrir túkall dregin upp á "svið" með jónsa og gítarleikara til þess að leiða konurnar í daníel og rut!! ekki veit ég betur en vel hafi til tekist og að kempurnar hafi tekið þetta???

var frekar róleg það sem eftir lifði helgar og höfum við kötturinn Tyson haft það alveg ljómandi gott saman.

takk fyrir skemmtilega helgi erls, erns og petrs... alltaf gaman að ykkur :)

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þú ert svo stropuð!!!

Erla Ósk sagði...

þú fórst á kostum í göngunni! Kannski þú fáir bara fast gigg með Jónsa og félögum það sem eftir er sumarsins? ;)

Nafnlaus sagði...

já spurning hvort hún verði leyniatriðið ef Jónsi verður í Eyjum.......og við bjóðum Rut velkomna upp á svið og hérna er lagið Daníel og Rut !!!

Verst ég kom ekki "sá ég spóa" á framfæri ;) hehehehe