mánudagur, maí 10, 2004

Búúúúúúinnnn!!!

Jess ég kláraði skólaárið 2003-2004 í dag þegar ég skilaði inn Independent Art project verkefninu. Fékk smá sting í magan þegar ég sá öll hin verkefnin, ekkert smá vel gerð og mikil vinna greinilega lög í þau... Jæja, við sjáum til hvort að sjarminn minn sé ekki nóg til þess að slefa upp í A-ið.

Fór svo út á tún hjá Erlu, ætlaði í sólbað en allt skýjað allt í einu. Er að spá í að fara í Target og kaupa mér fáránlega ódýra hlýraboli og tannkrem og fara í svona þvottahús eins og í bíómyndunum og "gera þvott".

Annars bíð ég eins og spenntur krakki sem bíður eftir jólunum eftir að hele familían komi eftir aðeins tvo daga!!!

Jæja farin að gera þvott,

leiter...

Engin ummæli: