laugardagur, maí 22, 2004

Why is it that everytime i go to the bar only the ugly girls hit on me, like im ugly or something...

Arrrg Íslendingarnir komu, sáu og sigruðu og tóku með sér góða veðrið, peningana og fjörið. Nei nei, það er bara búið að vera leiðindaveður síðan að liðið kom og fór og við Erla erum komnar á kúpuna og farnar að borða núðlur fyrir 20 cent í öll mál... Ekki sé minnst á að Úlfarnir töpuðu fyrir Englunum og ég búin að týna kortinu mínu. En ég tapa ekki gleðinni heldur safna liði og hefni og er farin að nota visa kortið mitt frá Íslandi, þökk sé Valgerði frænku og Möggu tvibba.

Annars er það á döfinni hjá mér að hreyfa mig, sturta mig og gera mig reddí fyrir skrall niðrí miðbæ Minneapolis, sem verður að sjálfsögðu án áfengra drykkja þar sem ég er að reyna að komast í gamla normið og er hálfpeningalus...

Hanywyas, bið bara að heilsa þeim sem vilja kannast við mig og þau ykkar sem eruð með nóg fé á milli handanna er velkomið að leggja inn á reikning minn hjá Landsbankanum...

brostu framan í heiminn þá mun heimurinn brosa við þér (eða að þér í mínu tilfelli)

bæó sykurpúðar

Engin ummæli: