sunnudagur, maí 02, 2004

Úff It´s been a while

Sorry gæs, ég er bara búin að vera svo bissý leitlí að það er ekki einu sinni fyndið. Í gær var ég látin vinna á frjálsíþróttamóti að mæla sleggjukast karla og kvenna í 5 klukkutíma! Já, á föstudagskvöldi, þvílík kvöl og pína.

Í dag fór ég svo með Erlu á Africa dinner, en hún er í Africa samtökunum og sér um svona hitt og þetta. Við fengum alvöru afrískan mat sem kona frá Úganda eldaði. Það var ótrúlega gott og ég er bara mjög stolt af mér fyrir að hafa prófað næstum allt á matseðlinum... en ég veit ekki hvað maginn segir á morgun.... það kemur bara í ljós hahaha

Núna er svo planið að búa til Pina Collider og fara í dansipartý með Bahamas vinum mínum og kannski skreppa í kaffi með Indlandsvinum og enda kvöldið í öðru partýi með fólki frá Svíþjóð, Nýja Sjálandi, Papa New Guinea, Eþíópíu og Tanzaniu. Segjiði svo að maður sé ekki alþjóðlegur...

Jæja farin að mixa drykki og skalla veggi.

Valgerður takk fyrir að redda blandípokanum fyrir mig, ur the best.

Pís át.

Engin ummæli: