þriðjudagur, desember 16, 2003

Ólöf þetta, Ólöf hitt...

Já þegar að nálgast heimför ÞÁ vilja allir vera vinir manns... Nei nei mér er alveg sama, endilega látið mig vita hvað ykkur langar í frá Steitinu, Minnesota beibí. Ég lofa (eða skal gera mitt besta) að gleyma ekki neinu.... M.ö.o ef ég legg mikið á mig þá gleymi ég bara helmingnum....

En man did I eis ðat test... Þetta var tveggja tíma próf og ég kláraði á 40 mínútum. Ég leit bara yfir prófið og hélt að það væri einhver að fokka í mér og hefði gleymt svona auka 4 blaðsíðum (you never know ef þú heitir Ólöf a.k.a óheppna). Þetta var víst bara svona létt próf, hey ekki kvarta ég!

En jæja gotta go shopping, ætli mér verði boðin vinna á Gentlemens bar aftur eins og síðast???
Vott, útskýri seinna, farin að versla allt þetta dót handa ykkur kjæuttípæs.
Lafa Skafa

Engin ummæli: