miðvikudagur, febrúar 11, 2004

Lafan búin á því...

Já vaknaði snemma í morgun, fór í poolworkout og er búin að vera ónýt í allan dag. Gerði svo magaæfingar með þeim afleiðingum að ég fór að skellihlægja við að sjá andlitið á Meghan (vinkona mín hérna úti) sem var að taka svo mikið á að það líktist helst tafl leik við páfann, og er alveg viss um að ég hafi tognað illilega í magavöðvanum hægra megin. (Ég er sko bara með tvo magavöðva:) ég get varla hlegið og er gjörsamlega ófær um að beygja mig og fetta.

C´mon man funk that.

annað issue, er sú regla dottin upp fyrir að vera ekki með gæjum vina sinna?? ég bara spyr...

ein handónýt í kanalandinu

Engin ummæli: