laugardagur, febrúar 14, 2004

Will you be my Valentine??

Valentínusardagur í dag og ég hef varla undan því að brjóta brosleg hjörtu ameríkanans sem vilja bara komast á eitt skitið deit með mér. Sorry gæs, er ekki á markaðnum....

Það snýst gjörsamlega allt um þennan dag kenndan við Valentínus ofurlover og það er ekki eitt lag í útvarpinu sem fjallar ekki um ást og söknuð...

Í dag var Valentínusarmorgunverður, svo Valentínusarhádegismatur, Valentínusarkvöldmatur og svo Valentínusarball.

Hvar endar þetta???

Ef ég lifi þetta af þá læt ég ykkur vita hvernig gekk að umbera kanavæmni í fullum skrúða

Valentínusar Ólöf

Engin ummæli: