föstudagur, júlí 01, 2005

A ella le gusta la gasolina
-dame mas gasolina!!

Á æfingu í gær byrjaði ég að syngja þetta lag til að beina athyglinni frá því hvað ég sökkaði feitt, og mér til mikillar undrunar þá voru tveir hausar sem rauluðu með og sögðust kannst við lagastúfinn!! En fyrir ykkur sem ekki vitið þá var þetta lag vinsælasta lagið útí Mejíkóóó og fjallar um unga dömu sem biður um meira "karlmanns-bensín" og ungan mann sem syngur: "hún fílar bensínið mitt" túlki hver sem hvað vill...

Annars beilaði ég á Akureyri í gær, en er meira en líkleg til að hoppa upp í vél í fyrramálið þar sem ég er með fráhvarfseinkenni af því að vera ekki með Möggu á kantinum, haldiði að þetta sé eðlilegt??

Framundan er leikur við HK/Víking, bæjarferð með hinni samlokunni, IBJ og verslunarferð a la Sódóma Reykjavík. Ætla að kaupa mér dissara-buxur því ég er í einhverju dissara-skapi þessa dagana. Ætlaði að hlaupa í morgun en fann ekki skóna. Ætlaði að horfa á nágranna í hádeginu en týndi gleraugunum. Ætlaði svo að keyra í vinnuna eina mínútu í eitt og mæta á réttum tíma svona til tilbreytingar, en þar sem ég sá ekki neitt gat ég ómögulega séð hvar lyklarnir voru og þurfti að leita að varalyklunum...

ég hreinlega spyr mig hvað í andskotanum ætli komi fyrir mig í kvöld???!!!

otra, otra noche -otra!! Quieres un taco???

6 ummæli:

Nafnlaus sagði...

hehe. Með þessu áframhaldi áttu eftir að enda einhversstaðar á rass****** niðrí bæ ;) So. ég myndi fara varlega ef ég væri þú ;)
Have fun kiddó

Nafnlaus sagði...

neinei þú ferð ekki neit við ætlum að vera fullar alla helgina í 101 dont beil on me hon

Nafnlaus sagði...

haha...þú ert alveg magnað eintak
helv...góð í að týna hlutum:)
En gaman að því..:)

Nafnlaus sagði...

hæ skvís! talandi um þetta lag, ég er ekki að djóka ég er búin að vera með einhver spænsk djammlög á heilanum síðan ég kom heim- glötuð hehe..

Lafan sagði...

bjögga: segðu...
bobby: beila ég einhverntímann???? haha aldrei...
bára: nei er það... týna, glata, gleyma, hverfa...
ösp: nákvæmlega!! en hey ég á von á disk með öllum þessum lögum bráðum...

Nafnlaus sagði...

Hehe tetta lag er líka svo algorlega tad heitasta hér á Spáni. En takk svo mikid fyrir útskýringuna, botnadi ekkert í tví ad allir skyldu vera ad syngja um bensín daginn út og daginn inn.
Un besito desde España